Hvernig vinnum við?

Hvers konar verkefni eru á teikniborðinu?

Jæja, en hver erum við?

Hildur Gunnlaugsdóttir og Bjarki Gunnar Halldórsson arkitektar FAÍ.

Við kynntumst fyrst uppi í Iðnskólanum í Reykjavík, fljótlega upp úr aldamótum, þegar við lærðum að teikna með hárnákvæmum rörpennum af miklu listfengi. 

Næstu árin stunduðum við nám okkar í arkitektúr, í sitt hvorri borginni í Danmörku, að kappi og sáumst við ekki aftur fyrr en eftir hrun, árið 2009. Þá nýútskrifaðir arkitektar. Í breyttum þjóðfélagsaðstæðum hófst samstarf okkar ásamt fleiri ungum arkitektum og til varð arkitektahópurinn Skyggni Frábært. Hópurinn varpaði fram áhugaverðum pælingum um framtíðina og skapaði uppbyggjandi samræðuvettvang fyrir almenningum alla möguleikana sem líf í borg bíður upp á. 

Síðan þá höfum við sankað að okkur víðtækri reynslu í arkitektúr, skipulagi og hönnun sem nýtist okkur í þessu nýja ævintýri okkar.