Hvernig vinnum við?
Samtalið er lykillinn að góðum arkitektúr. Þetta er samtal við staðinn, samtal við söguna, samtal við umheiminn og samfélagið en ekki síst samtal við fólkið sjálft sem mun upplifa arkitektúr kvölds og morgna, allan ársins hring. Þetta samtal þarf að rista djúpt en vera um leið skemmtilegt og örvandi svo skapa megi aðstæður til að bregða á leik og njóta stundarinnar.